Á aðalfundi FFR sem haldinn var í gær, fimmtudaginn 21. maí 2026, voru þau Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís, Hildur Ragnars, forstjóri Þjóðskrár og Jóna Katrín Hilmarsdóttir, skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni kjörin í stjórn FFR til næstu tveggja ára. Ágúst Hjörtur og Hildur hafa setið í stjórninni síðustu tvö ár en Jóna Katrín kemur ný inn í stjórnina. Þá sitja áfram í stjórninni þau Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri, Marín Guðrún Hrafnsdóttir, forstöðumaður Hljóðbókasafns Íslands og Örn Hrafnkelsson, landsbókavörður, auk formanns stjórnarinnar Sigríðar Kristinsdóttur, sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.