Morgunverðarfundur miðvikudaginn 18. nóvember um auknar kröfur um netöryggi

Morgunverðarfundur um auknar kröfur um netöryggi fyrir stofnanir, sveitarfélög, innviðafélög o.fl. verður haldinn miðvikudaginn 18. nóvember næstkomandi kl. 8:10-10:00 á Grand hótel í Reykavík.

Fundurinn er haldinn á vegum Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við HÍ í samstarfi við Félag forstöðumanna ríkisstofnana. 

Á döfinni er innleiðing nýrrar tilskipunar ESB um netöryggi (NIS2) sem hefur í för með sér stórauknar kröfur á því sviði m.a. fyrir opinberar stofnanir og stjórnendur þeirra. Dagskrá fundarins er sniðin að því að fræða stjórnendur opinberra stofnana o.fl. um það sem í vændum er og hvað snýr beinlínis að þeim. 

Nánari upplýsingar um fundinn og skráningu má finna hér.