Félag forstöðumanna ríkisstofnana (FFR) er félag allra forstöðumanna ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja sem fá laun samkvæmt grunnlaunaflokkun eða samkvæmt ákvörðun stjórnar ríkisstofnunar/ríkisfyrirtækis, sbr. 39. gr. a laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Meðal verkefna FFR er að efla kynni félagsmanna, vinna að sameiginlegum hagsmunamálum þeirra, þ.m.t. kjaramálum, og fylgjast með og fjalla um álitamál sem upp kunna að koma fyrir hönd forstöðumanna.
Heimilisfang félagsins er:
Félag forstöðumanna ríkisstofnana
Hverfisgötu 105
101 Reykjavík
Sími: 852 7300
Framkvæmdastjóri félagsins er Dagrún Hálfdánardóttir