Á aðalfundi FFR sem haldinn verður fimmtdaginn 21. maí næstkomandi fer fram kosning þriggja meðstjórnenda til næstu tveggja ára.
Listi yfir frambjóðendur er svohljóðandi:
Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís
Hildur Ragnars, forstjóri Þjóðskrár
Jóna Katrín Onnoy Hilmarsdóttir, skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni
Þar sem frambjóðendur eru jafnmargir og kjósa skal teljast þeir sjálfkjörnir.
Nánari kynning á frambjóðendum hefur verið send til félagsmanna með tölvupósti.