Félagsfundur FFR á Akureyri 15. mars

Boðað er til félagsfundar í Félagi forstöðumanna ríkisstofnana á Hótel KEA á Akureyrir  föstudaginn 15. mars nk. kl. 12:00-13:30.  Allir félagar í FFR eru velkomnir en forstöðumenn ríkisstofnana á Norðurlandi eru sérstaklega hvattir til að mæta.

Á fundinum verður boðið upp á hádegisverð sem þarf að greiða fyrir kr. 1.890,-

Dagskrá fundarins:

  1. Opnun fundar. Magnús Guðmundsson formaður FFR
  2. Staðan í kjara- og réttindamálum forstöðumanna ríkisstofnana. Steingrímur Ari Arason forstjóri Sjúkratrygginga Íslands (15 mín)
  3. Jafnréttismál. Kristín Ástgeirsdóttir jafnréttisstýra (15 mín)
  4. Verkmenntaskólinn á Akureyri. Hjalti Jón Sveinsson skólameistari (15 mín)
  5. Umræður og fyrirspurnir.

Fundarstjóri verður Ingibjörg S. Sverrisdóttir landsbókavörður.

Áríðandi: Munið að staðfesti þátttöku á fundinum í síðasta lagi 10. mars  2013 með því að senda tölvupóst á:[email protected]

Fyrir hönd félagsstjórnar

Magnús Guðmundsson, formaður

Print Friendly, PDF & Email