Geðheilsustöðin hlaut nýsköpunarverðlaunin 2015

6a897bacea4a5e97

Geðheilsustöðin í Breiðholti hlaut í dag nýsköpunarverðlaunin 2015 í opinberri þjónustu og stjórnsýslu, sem afhent voru á ráðstefnu á Grand hótel. Verðlaunin voru í dag afhent í fjórða sinn og að þessu sinni voru 48 verkefni tilnefnd.

Verkefni velferðarsviðs Reykjavíkurborgar sem bar sigur úr býtum nefnist „Geðheilsustöðin í Breiðholti“. Með Geðheilsustöðinni er ætlunin að veita fullorðnum einstaklingum sem greinst hafa með geðraskanir heildræna þjónustu og draga með því m.a. úr innlögnum á geðsvið Landspítalans. Innan Geðheilsustöðvarinnar starfar þverfaglegur hópur fagfólks sem vinnur eftir batahugmyndafræðinni þar sem notendum er hjálpað til að byggja upp betri sjálfsmynd og öðlast aukna vitund um eigið vald og val í lífinu. Í batastýrðri þjónustu er gjarnan nýtt persónuleg reynslu þeirra sem hafa náð bata af geðröskunum og hafa fyrrum notendur þjónustunnar orðið liðveitendur. Verkefnið hefur m.a. leitt til þess að  innlögnum frá íbúum í Breiðholti á geðsvið Landspítalans hefur fækkað um 28%  frá því að Geðheilsustöðin tók til starfa.

Fimm önnur verkefni fengu sérstakar viðurkenningar fyrir nýsköpun. Það voru Hafnarfjarðarkaupstaður fyrir „Áfram: Ný tækifæri í Hafnarfirði“, Reykjavíkurborg fyrir „Næringarútreiknaðir matseðlar, örútboð og matarsóun“, Langanesbyggð vegna Grunnskólans á Bakkafirði fyrir „Vinnustofur- Fjölbreyttir kennsluhættir og nýsköpun“, Embætti landlæknis og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins fyrir „Veru: Öruggur rafrænn aðgangur að mínum heilbrigðisupplýsingum“ og Seltjarnarnesbær fyrir „Ungmennaráð Seltjarnarness“.

Fréttin er fengin af vefsíður fjármálaráðuneytisins: http://www.fjarmalaraduneyti.is/frettir/nr/18893

Print Friendly, PDF & Email