Í síðustu viku var í Hæstarétti Íslands kveðinn upp dómur í máli Elfu Ýrar Gylfadóttur, framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar, gegn íslenska ríkinu (mál nr. 39/2025). Með dóminum er viðurkenndur réttur forstöðumanna til rökstuðnings fjármála- og efnahagsráðherra fyrir ákvörðun um starfskjör þeirra og til aðgangs að skriflegum gögnum er ákvörðunina varða.
FFR fagnar því að endanleg niðurstaða hafi fengist í þetta mikilvæga mál og óvissu þar með eytt um eðli launaákvarðana forstöðumanna. Dómurinn tekur af allan vafa um að ákvarðanir fjármála- og efnahagsráðherra um laun forstöðumanna teljist til stjórnvaldsákvarðana og ber ráðherra því að fylgja stjórnsýslulögum við meðferð þeirra mála. Sá forstöðumaður sem gegnir starfinu hverju sinni telst því ótvírætt aðili máls þegar ákvörðun um laun hans er tekin og nýtur þar með þeirra réttinda sem stjórnsýslulög kveða á um, svo sem um rétt til aðgangs að gögnum og rökstuðnings fyrir ákvörðun.