Nýr fundartími um stöðu og starfskilyrði forstöðumanna ríkisstofnana 25. apríl 8:10-10:15

Félags forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnunar stjórnsýslufræða heldur fund um STÖÐU OG STARFSKILYRÐI FORSTÖÐUMANNA RÍKISSTOFNANA.
NÝ DAGSETNING 25. APRÍL KL. 8-10:15  á Grand Hótel Reykjavík

Félags forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnunar stjórnsýslufræða heldur fund um STÖÐU OG STARFSKILYRÐI FORSTÖÐUMANNA RÍKISSTOFNANA.
NÝ DAGSETNING 25. APRÍL KL. 8-10:15  á Grand Hótel Reykjavík

Staða og starfskilyrði forstöðumanna ríkisstofnana
Niðurstöður könnunar og tillögur starfshóps um umbætur í starfsumhverfi forstöðumanna.

Morgunverðarfundar á Grand Hótel Reykjavík á vegum Fjármálaráðuneytisins, Félags forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands boða til fundar um stöðu og starfskilyrði forstöðumanna ríkisstofnana.

Dagskrá:
1. Oddný Harðardóttir, fjármálaráðherra flytur ávarp
2. Ómar H. Kristmundsson, prófessor í stjórnsýslufræði við Háskóla Íslands og Ágústa Hlín Gústafsdóttir, sérfræðingur í fjármálaráðuneytinu kynna niðurstöður rannsóknar um störf og starfsumhverfi forstöðumanna ríkisstofnana.
3. Margrét Friðriksdóttir, skólameistari Menntaskólans í Kópavogi: Kynning á niðurstöðum starfshóps um stöðu og starfskilyrði forstöðumanna
4. Pallborðsumræður og almennar umræður: Gunnar Björnsson skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu, Margrét Friðriksdóttir, skólameistari Menntaskólans í Kópavogi, Stefán Eiríksson, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu og Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, lektor í stjórnsýslufræðum við Háskóla Íslands.
Fundarstjóri er Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands og formaður í Félagi forstöðumanna ríkisstofnana.
Á morgunverðarfundinum eru kynntar nýjar niðurstöður könnunar sem gerð var í árslok 2011 meðal forstöðumanna ríkisstofnana og ráðuneytisstjóra um starfsumhverfi forstöðumanna og eru þær skoðaðar í samhengi við sams konar athugun sem gerð var á árinu 2007. Fjármálaráðuneytið, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við HÍ og Félag forstöðumanna ríkisstofnana stóðu að könnunum 2007 og 2011.
Jafnframt verða kynntar og ræddar tillögur starfshóps á vegum fjármálaráðuneytisins og Félags forstöðumanna ríkisstofnana um hvernig bæta má stöðu og starfskilyrði forstöðumanna.
Á fundinum verður m.a. horft til ýmissa þátta í vinnuaðstæðum forstöðumanna s.s. starfsþróun, starfsánægja, álag og streita, áhugahvöt, kjör og samskipti við ráðuneyti. Einnig fjármál, ímynd og gæði þjónustu stofnana, starfsmannamál, ákvörðun launa og stjórnunarhættir.
Með bestu kveðju,
Ásta Möller MPA,
forstöðumaður/director

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála / Institute of Public Management and Politics.
Háskóli Íslands/University of Iceland
Gimli við Sæmundargötu, 101 Reykjavík
[email protected]
Símar/tel +354- 525-5454/ +354-8639307
Heimasíða: http://www.stjornsyslustofnun.hi.is
Veftímarit:http://www.stjornmalogstjornsysla.is/

Print Friendly, PDF & Email