FFR minnir á fund um stöðu og starfskilyrði forstöðumanna ríkisstofnana 25. apríl á Grand Hótel Reykjavík

Fjármálaráðuneytið, Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands boða til

Morgunverðarfundar miðvikudaginn 25. apríl n.k. kl. 8:00-10:15 á Grand Hótel Reykjavík

Staða og starfskilyrði forstöðumanna ríkisstofnana

Niðurstöður könnunar og tillögur starfshóps um umbætur í starfsumhverfi forstöðumanna.

Skráning HÉR Þátttökugjald kr. 4200,- , morgunverður innifalinn. Morgunverður er frá kl. 8. Dagskrá hefst kl. 8:30

Á morgunverðarfundinum eru kynntar nýjar niðurstöður könnunar sem gerð var í árslok 2011 meðal forstöðumanna ríkisstofnana og ráðuneytisstjóra um starfsumhverfi forstöðumanna og eru þær skoðaðar í samhengi við sams konar athugun sem gerð var á árinu 2007. Fjármálaráðuneytið, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við HÍ og Félag forstöðumanna ríkisstofnana stóðu að könnunum 2007 og 2011. Ómar H. Kristmundsson, prófessor í stjórnsýslufræði við Háskóla Íslands og Ágústa Hlín Gústafsdóttir, sérfræðingur í fjármálaráðuneytinu kynna niðurstöðurnar. Þá mun Margrét Friðriksdóttir, skólameistari Menntaskólans í Kópavogi kynna nýjar tillögur starfshóps á vegum fjármálaráðuneytisins og Félags forstöðumanna ríkisstofnana um hvernig bæta má stöðu og starfskilyrði forstöðumanna. Á lokum verða pallborðsumræður með þátttöku Gunnars Björnssonar skrifstofustjóra í fjármálaráðuneytinu, Margrétar Friðriksdóttur, skólameistara Menntaskólans í Kópavogi og Sigurbjargar Sigurgeirsdóttir, lektors í stjórnsýslufræðum við Háskóla Íslands. Á fundinum verður m.a. horft til ýmissa þátta í vinnuaðstæðum forstöðumanna s.s. starfsþróun, starfsánægja, álag og streita, áhugahvöt, kjör og samskipti við ráðuneyti. Einnig fjármál, ímynd og gæði þjónustu stofnana, starfsmannamál, ákvörðun launa og stjórnunarhættir.

Oddný Harðardóttir, fjármálaráðherra flytur ávarp í byrjun fundar.

Fundarstjóri er Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands og formaður í Félagi forstöðumanna ríkisstofnana.

Print Friendly, PDF & Email