Umbætur í opinberri starfsemi með skipulögðu sjálfsmati – CAF sjálfsmatslíkanið

Morgunverðarfundur FFR og Stofnunar stjórnsýslufræða var haldinn 24. apríl á Grand hóteli. Umfjöllunarefnið var: Umbætur í opinberri starfsemi með skipulögðu sjálfsmati og var fjallað um CAF- sjálfsmatslíkanið fyrir ríkisstofnanir.

 

Síðan árið 2011 hefur fjármála- og efnahagsráðuneytið unnið að því meta fýsileika þess að innleiða sjálfsmatslíkan fyrir stjórnsýsluna. Fjármálaráðuneytið í samstarfi við velferðarráðuneytið gerðu tilraun með CAF-sjálfsmatstækið í byrjun árs 2012  í samstarfi við fimm stofnanir.  Á fundinum voru helstu niðurstöður úr tilraunferlinu kynntar og farið  yfir aðferðafræðina, ný handbók um CAF var kynnt o.fl. Glærur frá fundinum má nálgast hér:

CAF og vottað gæðakerfi skv. ISO 9001

CAF sjálfsmatslíkan

CAF handbókin

CAF – vegvísir að bættum ríkisrekstri

 

Print Friendly, PDF & Email