Skapandi opinber þjónusta – stjórnun, skilvirkni, samstarf, viðurkenning

Hádegisverðarfundur  Föstudagur 24. janúar 2014 kl. 11.45-14:00 á Grand hótel Reykjavík á vegum Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Félags forstöðumanna ríksstofnana, Rannís, Nýsköpunarmiðstöðar Íslands og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands. Veiting nýsköpunarverðlauna og viðurkenninga í opinberri þjónustu og stjórnsýslu 2014.

Dagskrá:

1.        Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra opnar fundinn og flytur ávarp.

2.        Marga Pröhl framkvæmdastjóri European Institute of Public Administration EIPA : How to strengthen, recognise and promote innovation in the public sector

3.        Dr. Hilmar Bragi Janusson forseti verkfræða- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands og fyrrv. fv.  framkvæmdastjóri vöruþróunar og rannsóknastarfs hjá         Össuri hf – Nýsköpun í opinberum rekstri – aukin skilvirkni í starfsemi stofnana.  

4.         Stefán Eiríksson lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu og Valgerður Stefánsdóttir forstöðumaður Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra.          Hlutverk stjórnanda að skapa nýsköpunarmenningu á stofnun.

5.        Afhending nýsköpunarverðlauna- myndbönd um helstu verkefni.  Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Fundarstjóri: Halldór Halldórsson, formaður Sambands ísl. Sveitarfélaga

Á  hádegisverðarfundinum verða afhent í þriðja sinn verðlaun og viðurkenningar um nýsköpun í opinberri þjónustu og stjórnsýslu.  Um 50 tilnefningar bárust til valnefndar.  Aðalfyrirlesari er Marga Pröhl framkvæmdastjóri European Institute of Public Administration, EIPA sem ræðir aðferðir til að styðja við og styrkja nýsköpun í opinbera geiranum.  Stofnunin  veitir m.a Evrópsku nýsköpunarverðlaunin í opinberri þjónustu, en á árinu 2013 voru um 230 verkefni frá  26 ríkjum og stofnunum ESB tilnefnd til verðlaunanna.  15 verkefni fengu sérstaka viðurkenningu, þar af voru tvö verkefni frá Íslandi. Það voru SignWiki frá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra og Samfélagsmiðlar lögreglunnar frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.  Þess má geta að þessi verkefni hafa fengið nýsköpunarverðlaun og viðurkenningu  í opinberum rekstri 2011 og 2012. Forstöðumenn þessarra stofnana, Stefán Eiríksson og Valgerður Stefánsdóttir fjalla um verkefni sín og ræða hlutverk stjórnanda að skapa nýsköpunarmenningu hjá stofnun.   Þá mun Dr. Hilmar Bragi Janusson forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands og fv.  framkvæmdastjóri vöruþróunar og rannsóknastarfs hjá Össuri hf flytja erindi um hvernig nýsköpun í opinberum rekstri nýtist til aukinnar skilvirkni í starfsemi stofnana.   Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra opnar ráðstefnuna og flytur ávarp.  Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra afhendir nýsköpunarverðlaun og viðurkenningar í opinberri þjónustu og stjórnsýslu.  Fundarstjóri er Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Print Friendly, PDF & Email