Félagsfundur FFR – reynslan af nýjum upplýsingalögum

Boðað er til félagsfundar í Félagi forstöðumanna ríkisstofnana á Hótel Reykjavík Natura í Reykjavík (áður Hótel Loftleiðir) 14. janúar 2014 kl. 12:00. (Athugið, annar fundarstaður en venjulega).

Borinn verður fram hádegisverður í upphafi fundar og þurfa fundarmenn að greiða kr. 3.600 fyrir hann. Á matseðlinum er kjúklingabringa með sveppa risotto og kryddjurtasalati og á eftir kemur kaffi og eitthvað sætt.

Fundurinn er haldinn til að fara yfir reynsluna af nýjum upplýsingalögum (http://www.althingi.is/lagas/nuna/2012140.html) sem tóku gildi þann 1. janúar 2013 og ræða skjalamál ríkisstofnana. Forstöðumenn ríkisstofnana eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum í kjölfar erinda sem flutt verða.

Áríðandi: Vinsamlega staðfestið þátttöku á fundinum í síðasta lagi 10. janúar 2014 með því að senda tölvupóst á: [email protected]

Dagskrá fundarins kl. 12:00-13:30:

1.    Opnun fundar, formaður FFR
2.    Hádegisverður borinn fram
3.    Páll Þórhallsson skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu
4.    Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður
5.    Eiríkur Guðmundsson þjóðskjalavörður
6.    Umræður og fyrirspurnir

Fyrir hönd félagsstjórnar

Magnús Guðmundsson, formaður

Print Friendly, PDF & Email