Upplýsingaöryggi hjá opinberum stofnunum: Innleiðing öryggisstefnu, framkvæmd áhættumats og áhættumeðferð. Námskeið 16. og 17. mars nk.

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við HÍ kynnir í samstarfi við Félag forstöðumanna ríkisstofnana:

Námskeið – tveir hálfir dagar:

fimmtudagurinn 16. mars, kl. 13:00 – 16:30
föstudagurinn 17. mars, kl. 09:00 – 12:30
í húsnæði Menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð, stofur H-203 og H-202.

Námskeiðið er fullbókað og því hefur verið lokað fyrir skráningar á það.
Verð: kr. 31.800-

Umsjón og fyrirlesari: Sigurjón Þór Árnason, gæða- og upplýsingaöryggisstjóri hjá Veðurstofu Íslands.

Námskeiðið byggir m.a. á hópastarfi og því er ekki boðið upp á fjarnám þessu sinni.

Umhverfi stofnana hefur breyst mikið undanfarin ár með vaxandi kröfum um hagkvæmni og aukin gæði í starfsemi stjórnsýslunnar. Þar er meðhöndlun og varsla persónuupplýsinga engin undantekning. Nú liggur fyrir ný Evrópulöggjöf um persónuvernd sem gerir mun ríkari kröfur  til öryggis við meðhöndlun og vörslu persónuupplýsinga í stjórnun og rekstri hjá opinberum aðilum, sem og hjá einkafyrirtækjum.

Með nýju Evrópulöggjöfinni um persónuvernd verða kröfur gerðar til stofnana um að innleiða upplýsingaöryggiskerfi sem inniheldur öryggisstefnu, framkvæmd áhættumats og öryggisráðstafanir. Jafnframt eru gerðar kröfur um sérstakan  persónuverndarfulltrúa og að tilkynna skuli öryggisbresti til Persónuverndar, auk þess sem sektarheimildir eftirlitsstofnana verða stórauknar.

Markmið námskeiðsins eru að auka hagnýta þekkingu þátttakenda á innleiðingu upplýsingaöryggiskerfa sem standast kröfur sem gerðar eru um persónuvernd. Námskeiðið samanstendur af fyrirlestrum og hópverkefnum. Farið verður yfir hvað liggur til grundvallar við mótun öryggisstefnu, og hvernig skal framkvæma áhættumat og innleiða öryggisráðstafanir samkvæmt kröfum um persónuvernd og upplýsingaöryggi.

Markhópur: Stjórnendur og starfsfólk hjá ráðuneytum, stofnunum ríkisins og sveitarfélögum sem bera ábyrgð á meðhöndlun og vörslu persónuupplýsinga.

Nánar um skipulag og efnisþætti námskeiðsins: 
Fyrri dagurinn:

  • Hvaða kröfur eru gerðar vegna breytinga á  nýjum persónuverndarlögunum?
  • Farið yfir þær einingar sem byggja upp upplýsingaöryggiskerfi.
  • Hvað á heima í öryggisstefnu?
  • Undirstaða áhættumats.
  • Hópastarf: Þátttakendur greina helstu þætti sem skipta máli og gera frummat á hvort það svari kostnaði að leggja í framkvæmd áhættumats.
  • Hver hópur kynnir niðurstöður sínar.

Síðari dagurinn: 

  • Farið er yfir framkvæmd á áhættumati.
  • Hvað er áætlun um samfelldan rekstur og hvernig er hún búin til?
  • Hópastarf: Hver hópur fær verkefni að teikna upp nokkra meginferla og framkvæma áhættumat, og setja niður áætlun um áhættumeðferð.
  • Hver hópur kynnir niðurstöður sínar

Sigurjón Þór Árnason er gæða- og upplýsingaöryggisstjóri hjá Veðurstofu Íslands.  Hann lauk BSc prófi í rafeindafræðum frá Odense Tekniske Universitet árið 1983 og MPA prófi í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands í febrúar 2017.  MPA lokaverkefni hans er handbók um innleiðingu öryggisstefnu, framkvæmd áhættumats og áhættumeðferðar hjá opinberum stofnunum. Sigurjón Þór hefur um áratugaskeið starfað við tölvu- og upplýsingaöryggismál, bæði hjá opinberum stofnunum og sem ráðgjafi. Hann er Lead Auditor í ISO 27001 staðlinum fyrir stjórnkerfi upplýsingaöryggis og annar höfundur bókarinnar „How to Achieve 27001 Certification: An Example of Applied Compliance Management“.  Að auki hefur Sigurjón Þór verið stundakennari í diplómanámi í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands.

Print Friendly, PDF & Email