Stjórn FFR boðar til málstofu um starfsmannalögin, mannauðsstjórnun og vinnustaðamenningu stofnana og þeirri spurningu velt upp hvort ekki sé tímabært að ráðast í breytingar á starfsmannalögunum. Málstofan verður haldin í Norræna húsinu föstudaginn 9. maí nk. kl. 13:00-14:00 áður en aðalfundur FFR fer fram.
Helga Þórisdóttir, formaður stjórnar FFR opnar málstofuna og aðalfyrirlesari verður Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, prófessor við viðskiptadeild HÍ sem vinnur nú að rannsókn á starfsmannalögunum. Endað verður á stuttri vinnustofu um hvað forstöðumenn ríkisstofnana telja mikilvægast að breyta í starfsmannalögunum.