Félagsfundur 10. nóvember 2011

 

Boðað er til félagsfundar í Félagi forstöðumanna ríkisstofnana á Grand Hótel í Reykjavík fimmtudaginn 10. nóvember kl. 12.00. Meginefni fundarin er kjara- og réttindamál forstöðumanna og verður sérstakur gestur fundarins Svanhildur Kaaber, formaður Kjararáðs. Nánari upplýsingar um dagskrá fundarins og skráningu er hér að finna.

Félagsfundur hjá

FÉLAGI FORSTÖÐUMANNA RÍKISSTOFNANA

 

Boðað er til félagsfundur í Félagi forstöðumanna ríkisstofnana á Grand Hótel í Reykjavík, fimmtudaginn 10. nóvember 2011 kl. 12:00. Meginefni fundarins er kjara- og réttindamál forstöðumanna og verður sérstakur gestur fundarins Svanhildur Kaaber, formaður Kjararáðs.
Boðið verður upp á tvíréttaðan hádegisverð á fundinum og þurfa fundargestir greiða kr. 2.950,- fyrir hann þegar þeir mæta. Til þess að hægt sé að hafa nægan mat er mikilvægt að allir sem hyggjast mæta skrái sig með því að senda tölvupóst á: [email protected] fyrir 9. nóvember 2011.


Dagskrá :

1. Setning fundar: Magnús Guðmundsson, formaður FFR

2. Framsaga; Svanhildur Kaaber formaður Kjararáðs

3. Kjaramál forstöðumanna: Steingrímur Ari Arason

4. Vinna nefndar um starfsskilyrði og kjör forstöðumanna: Stefán Eiríksson og Margrét Friðriksdóttir

5. Tillögur lagðar fram um næstu skref í kjaramálum

6. Önnur mál


Fyrir hönd félagsstjórnar

Magnús Guðmundsson, formaður


Áríðandi: Munið að staðfesti þátttöku á fundinum fyrir 9. nóvember 2011

með því að senda tölvupóst á: [email protected]

Hugtakið „nýsköpun“ hefur einna helst verið tengt starfsemi sprota- og frumkvöðlafyrirtækja á einkamarkaði. Nýsköpun í opinberum rekstri er hins vegar mjög þýðingarmikil, vegna umfangs hins opinbera og verkefna sem unnin eru í almannaþágu. Opinberar stofnanir þurfa stöðugt að leita nýrra leiða til að mæta nýjum þörfum samfélagsins og aðlaga starfsemi sína að breyttum efnahagslegum aðstæðum. Stjórnendur og starfsfólk opinberra stofnana beita hugkvæmni og leita stöðugt nýrra leiða til að leysa verkefni sín í þágu samfélagsins. Í nýrri norrænni rannsókn kemur fram að um 90% opinberra stofnana á Íslandi stunda nýsköpun af einhverju tagi. Þetta bendir til mikillar grósku og að mörg tækifæri séu nýtt til umbóta í opinberum rekstri. Þessi nýsköpunarverkefni þarf að gera sýnileg og kynna öðrum til eftirbreytni
Ráðstefna og málþing um nýsköpun í opinberum rekstri er afrakstur samvinnu fjármálaráðuneytisins, Félag forstöðumanna ríkisstofnana, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Rannís, en þessir aðilar tóku höndum saman um að draga athygli að nýsköpun og þróunarverkefnum í starfsemi hins opinbera og stuðla að nýsköpun í opinberum rekstri á Íslandi. Síðsumars var sent erindi til forstöðumanna ríkisstofnana, þar sem óskað var tilnefninga um verkefni frá ríkisstofnunum til nýsköpunarverðlauna í opinberum rekstri. Skilafrestur var til 1. október s.l. og bárust 40 tilnefningar um nýsköpunarverkefni frá 24 stofnunum. Eitt þeirra hefur verið valið til nýsköpunarverðlauna í opinberum rekstri og þrjú til viðbótar fá sérstaka viðurkenningu á ráðstefnunni. Átján verkefni hafa verið valin til kynningar á málþingi sem haldið verður að lokinni ráðstefnu kl. 10:45-12:15.
Á ráðstefnunni mun Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra ræðir áherslur stjórnvalda í nýsköpun og umbótum í opinberum rekstri og afhendir verðlaun og viðurkenningar fyrir nýsköpun í opinberum rekstri. Þá fjallar Ómar H Kristmundsson, prófessor í stjórnsýslufræðum um mikilvægi nýsköpunar- og þróunarvinnu hjá hinu opinbera og hann opnar upplýsingaveitu um nýsköpun í opinberum rekstri. Þorsteinn Gunnarsson, sérfræðingur hjá Rannískynnir niðurstöður nýrrar rannsóknar á nýsköpun í opinberum rekstri á Norðurlöndum sem unnin var á vegum Nordisk Innovation Forum og að lokum ræðir Edwin Lau, sérfræðingur hjá OECD áherslur stofnunarinnar um nýsköpun í opinberum rekstri. Nýsköpun í opinberum rekstri- alþjóðlegar áherslur. 45 mín.
Á málþinginu munu eftirtaldar stofnanir kynna nýsköpunarverkefni sín sem valin voru til kynningar á málþinginu: Lögreglustjórinn á Hvolsvelli, Blindrabókasafn Íslands, Matvælastofnun, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sem mun kynna 3 verkefni, Landspítalinn sem kynnir 2 verkefni, Ríkiskaup, Framkvæmdasýsla ríkisins, Háskólinn á Akureyri, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Landmælingar Íslands, Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu, Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, Vegagerðin, Þjóðminjasafn Íslands og Fiskistofa. Fyrirlesarar munu m.a. ræða hvernig hægt er að yfirfærar hugmyndir nýsköpunarverkefna á önnur svið opinberrar starfsemi.

Print Friendly, PDF & Email