Aðalfundur Félags forstöðumanna ríkisstofnana verður haldinn 16. maí 2024

Aðalfundur Félags forstöðumanna ríkisstofnana verður haldinn fimmtudaginn 16. maí næstkomandi kl. 13:30 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands við Suðurgötu í Reykjavík. Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf í samræmi við lög félagsins.

Tillögur að lagabreytingum félagsins skulu berast stjórn eigi síðar en fjórum vikum fyrir aðalfund. Nánari upplýsingar um fundinn verða kynntar þegar nær dregur.

Print Friendly, PDF & Email