Aðalfundur 2015 – skýrsla stjórnar 2014-2015

Aðalfundur Félags forstöðumanna ríkisstofnana var haldinn þriðjudaginn 2. júní 2015 á Grand hóteli, Reykjavík. Björn Karlsson forstjóri Mannvirkjastofnunar var kjörinn formaður en í stjórn og varastjórn voru kjörin þau Halldór Ó. Sigurðsson forstjóri Ríkiskaupa, Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður, Kristín Linda Árnadóttir forstjóri Umhverfisstofnunar, Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður, Borghildur Erlingsdóttir forstjóri Einkaleyfastofu, Guðjón S. Brjánsson forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands og Sigríður Lillý Baldursdóttir forstjóri Tryggingastofnunar.

Í starfskjaranefnd voru kjörnir Tryggvi Axelsson forstjóri Neytendastofu (formaður), Ársæll Guðmundsson skólameistari og Indriði H. Þorláksson fyrrverandi forstöðumaður.

 

Print Friendly, PDF & Email