Umbætur í opinberri starfsemi með skipulögðu sjálfsmati

Morgunverðarfundur 24. apríl Umbætur í opinberri starfsemi með skipulögðu sjálfsmati. Þann 24. apríl nk. standa fjármála- og efnahagsráðuneytið, Félag forstöðumanna ríkisstofnana (FFR) og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands fyrir morgunverðarfundi á Grand Hótel Reykjavík um CAF- sjálfsmatslíkan fyrir ríkisstofnanir. Síðan 2011 hefur fjármála- og efnahagsráðuneytið unnið að því meta fýsileika þess að innleiða sjálfsmatslíkan fyrir stjórnsýsluna. Fjármálaráðuneytið í samstarfi við velferðarráðuneytið gerðu tilraun með CAF-sjálfsmatstækið í byrjun árs 2012  í samstarfi við fimm stofnanir.  Á fundinum verða helstu niðurstöður úr tilraunferlinu kynntar, farið verður yfir aðferðafræðina, ný handbók um CAF verður kynnt o.fl.  Nánar auglýst síðar.

Print Friendly, PDF & Email