Morgunverðarfundur 28. apríl 2011 – Hvernig geta stjórnendur náð betri árangri í innkaupum?

Félag forstöðumanna ríkisstofnana, fjármálaráðuneytið, Ríkisendurskoðun, Ríkiskaup og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála boða til morgunverðarfundar fimmtudaginn 28. apríl 2011 kl. 8-10 á Grand hótel í Reykjavík. Umfjöllunarefni fundarins er hvernig stjórnendur geta náð betri árangri í innkaupum og þau tækifæri til hagræðingar sem í því felast í rekstri stofnana.


Félag forstöðumanna ríkisstofnana, Fjármálaráðuneytið, Ríkisendurskoðun, Ríkiskaup og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála
boða til morgunverðarfundar fimmtudaginn 28. apríl kl. 8-10
á Grand hótel Reykjavík

Fundurinn hefst með morgunverði kl. 8, dagskrá hefst kl. 8.30 og stendur til kl. 10.

Hvernig geta stjórnendur náð betri árangri í innkaupum?
Tækifæri til frekari hagræðingar í rekstri stofnana.

Skráning HÉR Þátttökugjald er kr. 3900.-, morgunverður innifalinn.

Því er haldið fram að bætt innkaup stofnana sé sársaukaminnsta leið stjórnenda til að spara í rekstri þeirra. Áætlað er að um 25-30% af ríkisútgjöldum sé varið til kaupa á vörum og þjónustu. Það svarar til um 150- 170 milljarða króna ef miðað er við útgjöld ársins 2010. Þarna liggja því verulegir fjárhagslegir hagsmunir. Miklu skiptir að þessu fé sé varið með hagkvæmum, skilvirkum og árangursríkum hætti. Stjórnvöld leggja áherslu á fagleg og öguð vinnubrögð í opinberum innkaupum sem kemur m.a. fram í lögum um opinber innkaup og í Innkaupastefnu ríkisins.

Ríkisendurskoðun hefur á síðustu misserum skoðað nokkra þætti innkaupa hjá ríkinu og telur að bæta megi aðferðir á þessu sviði og spara með því fé. Ríkiskaup veita opinberum stofnunum og fyrirtækjum ráðgjöf og þjónustu á sviði innkaupa í stóru sem smáu. Fjárhagslegur ávinningur af starfi stofnunarinnar við gerð rammasamninga, útboða, þar með talið örútboða, verðkannana og eignasölu hefur verið metinn um 20%, sem er meðalafsláttur. Það munar um minna.
Á morgunverðarfundinum mun Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra flytja ávarp. Kristín Kalmansdóttir, sviðsstjóri hjá Ríkisendurskoðun ræðir niðurstöður úttekta stofnunarinnar á innkaupamálum og ábendingar hennar um bætt vinnubrögð á þessu sviði og Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir forstöðumaður viðskiptaþróunarsviðs Ríkiskaupa fjallar um hvaða verkfæri stofnanir geta notað til að lækka útgjöld vegna innkaupa. Að því loknu verða panelumræður með frummælendum, en einnig taka þátt Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, Elva Rakel Jónsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun og Haraldur Bjarnason, sérfræðingur hjá fjármálaráðuneytinu og verða þau með stutt innlegg um samninga um kaup á vörum og þjónustu, vistvæn innkaup og rafræn innkaup.

Fundarstjóri er Magnús Pétursson, ríkissáttasemjari.

Print Friendly, PDF & Email