Morgunverðarfundur um afnám áminningarskyldunnar fimmtudaginn 16. apríl nk.

Morgunverðarfundur um afnám áminningarskyldunnar verður haldinn fimmtudaginn 16. apríl næstkomandi kl. 8:10-10:00 á Reykjavík Natura.

Fundurinn er haldinn á vegum Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála í samstarfi við Félag forstöðumanna ríkisstofnana.

Á fundinum mun Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, fjalla um hagræðingu í ríkisrekstri og áform um breytingar á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, en m.a. er áformað að afnema áminningarskyldu sem undanfara uppsagnar eða lausnar um stundarsakir. Viðbrögð við ávarpi ráðherra veita þær Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM og Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu og formaður FFR. Að lokum munu þau taka þátt í umræðum og svara spurningum fundargesta.

Nánari upplýsingar um fundinn og skráningu má finna hér.